Sunnudaginn 27. desember verður jólaball Hauka haldið í salnum á Ásvöllum. Dansað verður í kringum jólatréið og aldrei að vita nema að jólasveinninn láti sjá sig. Ballið hefst kl. 17:00 og lýkur kl. 19:00. Jólabingóið verður á sínum stað og mun spjaldið kosta 500.- krónur. Ókeypis veitingar fyrir alla.
No comments:
Post a Comment